Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Coventry upp í ensku úrvalsdeildina (Staðfest)
Frank Lampard kom Coventry upp í ensku úrvalsdeildina í kvöld
Frank Lampard kom Coventry upp í ensku úrvalsdeildina í kvöld
Mynd: EPA
Blackburn 1 - 1 Coventry
1-0 Ryoya Morishita ('54 )
1-1 Bobby Thomas ('84 )

Frank Lampard og lærisveinar hans í Coventry City eru komnir upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 25 ár eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Blackburn Rovers á Ewood Park í kvöld.

Coventry þurfti aðeins stig til að tryggja úrvalsdeildarsætið og leit allt út fyrir að Blackburn myndi skemma teitið.

Ryoya Morishita skoraði fyrir Blackburn á 54. mínútu er skot Ryan Alebiosu fór af varnarmanni og til Morishita sem setti boltann í markið.

Coventry-menn reyndu allt hvað þeir gátu til þess að ná í þetta mikilvæga stig. Jack Rudoni átti skalla sem fór í innanverðu stöngina og rúllaði eftir línunni áður en flaggið fór á loft vegna rangstöðu á Haji Wright.

Það færðist meiri ákefð í leik gestanna á lokamínútunum og þegar aðeins sex mínútur voru eftir skoraði Bobby Thomas markið sem skaut Coventry upp í efstu deild.

Victor Torp stýrði aukaspyrnu inn á Thomas sem stangaði boltann í netið og batt enda á 25 ára sársauka. Coventry féll úr ensku úrvalsdeildinni árið 2001 eftir að hafa verið 34 ár samfleytt í efstu deild.

Á þessum 25 árum hefur Coventry flakkað á milli deilda. Það lék í D-deildinni tímabilið 2017-2018 og kom sér síðan aftur upp í B-deildina nokkrum árum síðar. Á síðustu árum hefur liðið verið nálægt því að komast upp í efstu deild og tókst það markmið loks í kvöld.

Coventry er á toppnum með 86 stig og getur kórónað frábært tímabil á næstu vikum með því að vinna deildina, en liðið er með ellefu stiga forystu á Ipswich sem er í öðru sæti og með tvo leiki til góða.

Andri Lucas Guðjohnsen var ekki með Blackburn í kvöld vegna meiðsla en Blackburn er í 19. sæti með 49 stig, fimm stigum fyrir ofan fallsæti.


Slapp
banner