Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   fim 16. apríl 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bjarki og Hólmar yfirgefa Leikni (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Cantera Orihuela CF
Leiknir hefur tilkynnt að Hólmar Kári Tryggvason og Bjarki Arnaldarson hafa yfirgefið félagið.

Hólmar er framherji fæddur árið 2006 en hann ólst upp hjá ÍR. Hann kom til Leiknis frá spænska liðinu Orihuela í fyrra og kom við sögu í einum leik með aðalliðinu. Hann var þá mikilvægur hlekkur í 2. flokki liðsins.

Hann fór ungur að árum til Spánar en hann hóf meistaraflokksferil sinn með CD Thader þar sem m.a. Xavi Simons hóf sinn feril.

Bjarki er markvörður fæddur árið 2003. Hann er uppalinn Stjörnumaður en hann gekk til liðs við Leikni árið 2020.






Slapp
banner