Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 11:30
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum leikmaður Grindavíkur í Völsung (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Völsungur
Franski varnarmaðurinn Walid Abdelali hefur samið um að leika með Lengjudeildarliði Völsungs á komandi tímabili.

Walid er 33 ára gamall og þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa spilað eitt tímabil með Grindavík árið 2021.

Þá lék hann 17 leiki í Lengjudeildinni og framlengdi við Grindavík um mitt sumar áður hann hélt til Finnlands nokkrum mánuðum síðar.

Síðustu ár hefur hann spilað í neðri deildunum í Finnlandi en er nú kominn aftur til Íslands og samið um að leika með Völsungi í Lengjudeildinni.

Hann spilaði nokkra leiki með Völsungi á undirbúningstímabilinu og ætti að vera klár þegar liðið fær Leikni í heimsókn í opnunarumferð deildarinnar þann 25. apríl.


Slapp
banner