Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   fös 17. apríl 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Keflavík fær unglingalandsliðsmann frá Blikum (Staðfest)
Mynd: Keflavík
Keflavík hefur samið við unglingalandsliðsmanninn Egil Val Karlsson, sem kemur til félagsins frá Breiðabliki.

Egill Valur er 17 ára gamall vinstri bakvörður sem semur við Keflavík til ársins 2029.

Hann á að baki 13 landsleiki með U15, U16 og U17 ára landsliðum Íslands.

Bakvörðurinn á þrjá leiki í Lengjubikarnum fyrir meistaraflokk Breiðabliks, en ætlar nú að reyna fyrir sér hjá Keflvíkingum í leit að fleiri tækifærum.

Egill er ættaður frá Keflavík en faðir hans, Karl, er uppalinn Keflvíkingur.


Slapp
banner
banner
banner