Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   lau 18. apríl 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
FHL fær öflugan varnarmann frá Kanada (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: FHL
Lengjudeildarlið FHL hefur fengið til sín varnarmanninn Abigail Steen til félagsins og mun hún leika með liðinu út þetta keppnistímabil.

Steen kemur frá Kanada þar sem hún spilaði með háskólaliði Calgary Foothills.

Hún er öflug og fjölhæf, sterk í loftinu og er góð að færa boltann upp völlinn.

Árið 2021 var Steen valin í stjörnulið Atlantic University Sport og hlaut titilinn sem nýliði ársins.

FHL mætir Völsungi í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar 3. maí næstkomandi en spilað er í Fjarðabyggðarhöllinni.


Slapp
banner
banner