Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   lau 18. apríl 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Frá KR í Gróttu (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Grótta
Bandaríski varnarmaðurinn Maya Camille Neal er gengin til liðs við Gróttu í Lengjudeildinni.

Maya þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa spilað með Aftureldingu sumarið 2023 og KR-ingum á síðustu leiktíð.

Áður lék hún með Le Havre í Frakklandi og BIIK Shymkent í Kasakstan ásamt því að hafa spilað fyrir háskólalið Tennessee í Bandaríkjunum.

Hún kom til móts við Gróttu í æfingaferð liðsins á Kanaríeyjum í lok mars og er nú komin með leikheimild fyrir leikinn gegn Fylki í Mjólkurbikarnum á sunnudag.

„Maya kemur með margt að borðinu fyrir okkar öfluga kvennalið. Hún mikil íþróttakona, sterkur varnarmaður og einbeittur karakter sem mun án vafa hjálpa Gróttuliðinu mikið í sumar. Við fögnum því að fá hana til liðs við okkur og vonumst til að Gróttufólk taki vel á móti henni,“ sagði Magnús Örn Helgason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Gróttu um Mayu.

Maya er spennt fyrir komandi tímabili með Gróttu.

„Ég er þakklát fyrir að vera komin í Gróttu og fá að leggja mitt að mörkum fyrir þetta metnaðarfulla félag. Það er mikil samstaða,“ sagði Maya við undirskrift.


Slapp
banner
banner