Manchester City hefur staðfest að Bernardo Silva mun yfirgefa félagið í sumar.
Portúgalinn, sem er 31 árs, gekk í raðir City 2017 og hefur hann spilað 451 leik á níu árum hjá félaginu. Hann hefur skorað 76 mörk og átt 77 stoðsendingar.
Hann hefur unnið fimmtán stóra titla með félaginu, þar á meðal sex úrvalsdeildartitla og Meistaradeildina einu sinni. Fyrir þetta tímabil var hann gerður að fyrirliða City.

Í kveðjubréfi á Instagram síðu sinni segir Silva að hann verði stuðningsmaður City út lífið. Félagið og Manchester borg hafi gefið sér svo miklu meira en hann gat ímyndað sér.
Fróðlegt verður að sjá hvert Bernardo Silva mun fara en hann hefur verið orðaður við Juventus, Barcelona, Benfica og bandarísku MLS-deildina.
Manchester City can confirm Bernardo Silva will leave the Club this summer.
— Manchester City (@ManCity) April 16, 2026
???? https://t.co/XqZqQz2q7l pic.twitter.com/C0xjzWjV5f