Miðjumaðurinn Thelma Sól Óðinsdóttir er gengin til liðs við HK í Lengjudeildinni en hún gerir samning út 2027.
Thelma er fædd árið 2004 og kemur til félagsins frá Aftureldingu þar sem hún lék í eitt og hálft tímabil eftir að hafa áður leiki með uppeldisfélagi sínu, ÍBV.
Hún kemur með mikla reynslu inn í HK-liðið en hún hefur spilað 55 leiki í efstu deild með Eyjakonum og 32 leiki í Lengjudeildinni, með bæði Aftureldingu og ÍBV.
HK hafnaði í þriðja sæti Lengjudeildarinnar á síðasta ári og var hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina.




