Fer 1. júlí
Gabríel Snær Gunnarsson mun í sumar ganga í raðir sænska félagsins Elfsborg frá ÍA. Sænska félagið kaupir Gabríel og skrifar hann undir þriggja ára samning við félagið. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum Gabríels til Elfsborg fyrr í vetur.
Hann er U19 landsliðsmaður sem fæddur er 2008 og hefur verið iðinn við kolann með ÍA á undirbúningstímabilinu. Hann er sóknarmaður sem uppalinn er hjá ÍA og ÍBV. Faðir hans er markahrókurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Félagaskiptin munu ganga í gegn 1. júlí og verður Gabríel hjá ÍA þangað til.
„Þetta eru afar gleðileg tíðindi fyrir bæði félagið og Gabríel Snæ, sem fær nú tækifæri til að stíga næstu skref á ferli sínum. Um leið er þetta mikil viðurkenning fyrir starf félagsins, en með þessum félagaskiptum verður Gabríel 13. leikmaðurinn sem ÍA selur erlendis á síðustu níu árum. Félagið mun njóta þess að sjá Gabríel í síðustu leikjum sínum fyrir ÍA í sumar áður en hann heldur utan í júlí," segir í tilkynningu ÍA.

