Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   fim 16. apríl 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brynjar Gauti og Henrik Máni í KFG (Staðfest)
Brynjar Gauti
Brynjar Gauti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFG hefur fengið liðstyrk en Brynjar Gauti Guðjónsson og Henrik Máni B. Hilmarsson eru gengnir til liðs við félagið.

Brynjar Gauti er reynslumikill leikmaður en hann kemur til liðsins frá Fjölni þar sem hann spilaði 14 leiki í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð. Hann er uppalinn hjá Víkingi Ó. en hann er með mikla reynslu úr efstu deild með ÍBV, Stjörnunni og Fram.

Henrik kemur frá Stjörnunni en hann var á láni hjá KFG í fyrra. Hann kom við sögu í fimm leikjum í 2. deild með liðinu þar sem liðið hafnaði í 10. sæti.

Þá hefur liðið einnig nælt í Axel Frey Ívarsson frá Fjölni, Pétur Mána Þorkelsson frá KFK og Björn Darra Ásmundsson frá Kára í vetur.
Slapp
banner
banner