Helga Rut Einarsdóttir er gengin í raðir Vals en félagið hefur keypt hana frá Breiðabliki.
Helga kemur í Val eftir eitt ár hjá Breiðabliki þar sem hún varð Íslands- og bikarmeistari. Hún lék áður með Grindavík. Á síðasta tímabili lék hún alls 17 leiki með Blikum.
Helga kemur í Val eftir eitt ár hjá Breiðabliki þar sem hún varð Íslands- og bikarmeistari. Hún lék áður með Grindavík. Á síðasta tímabili lék hún alls 17 leiki með Blikum.
„Við þökkum Helgu Rut fyrir hennar framlag og óskum henni góðs gengis," segir í tilkynningu Breiðabliks.
Helga er 19 ára miðvörður og fyrirliði U19 landsliðsins sem er á leið á EM.
Úr tilkynningu Vals
Valur bindur miklar vonir við Helgu, sem þykir bæði hæfileikarík og sterkur leiðtogi. Hún segir sjálf mikinn heiður að ganga til liðs við félagið og hlakkar til að takast á við nýjar áskoranir á Hlíðarenda.
„Það er virkilega spennandi að taka næsta skref með Val. Félagið hefur skýra sýn og mikinn metnað og ég er mjög ánægð að fá tækifæri til að vera hluti af því. Ég kem inn með mikinn vilja til að leggja hart að mér, taka ábyrgð og halda áfram að þróast sem leikmaður," segir Helga.
Gareth Owen, tæknilegur ráðgjafi hjá Val, er virkilega ánægður með komu Helgu til félagsins:
„Að fá Helgu Rut til liðs við okkur styrkir liðið okkar mikið fyrir komandi tímabil. Við erum ekki aðeins að fá afar hæfileikaríkan leikmann heldur einnig öflugan leiðtoga. Við teljum að hún hafi alla þá eiginleika sem þarf til að verða lykilleikmaður hér hjá Val og allir innan félagsins eru ánægðir með að fá hana til okkar.“
Velkomin í Val, Helga Rut!

