Hilmar Óli Viggósson er genginn til liðs við Ægi frá Val. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Hilmar Óli er fæddur árið 2007 en hann hefur spilað með yngri flokkum HK og Breiðabliks en hann gekk til liðs við Val árið 2024 þar sem hann spilaði með 2. flokki félagsins. Hann kom við sögu í einum leik í Lengjubikarnum í vetur.

Hilmar hefur spilað fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Ægir spilar í Lengjudeildinni í sumar eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegari í 2. deild síðasta sumar.