Ivan Juric ráðinn stjóri Roma (Staðfest)
<p>Roma hefur staðfest að Ivan Juric hefur tekið við af Daniele De Rossi sem stjóri liðsins.</p>
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25132 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
<p>Roma hefur staðfest að Ivan Juric hefur tekið við af Daniele De Rossi sem stjóri liðsins.</p>
Narcis Pelach hefur verið ráðinn nýr stjóri Stoke City og gert þriggja ára samning við félagið. Þessi 36 ára Katalóni var í þjálfarateymi Norwich City. Hann tekur við Stoke af Steven Schumacher en liðið situr núna í 13. sæti Championship-deildarinnar.
Króatinn Ivan Perisic hefur lokið læknisskoðun hjá hollenska félaginu PSV Eindhoven og skrifað undir samning til júní 2025. Perisic er 35 ára og kemur til PSV með reynslu og leiðtogahæfileika. Hann hefur átt blómlegan feril með félögum á borð við Bayern München, Inter og Tottenham.
Bordeaux, sem spilar í fjórðu efstu deild í Frakklandi, hefur krækt í Andy Carroll á frjálsri sölu. Carroll er enskur framherji, 35 ára, sem kemur til Bordeaux eftir að hafa spilað með Amiens í frönsku B-deildinni á síðasta tímabli. Hann fékk samningi sínum við Amiens rift til að geta samið við Bordeaux. Bordeaux var dæmt niður í fjórðu efstu deild í sumar eftir að hafa farið í gjaldþrot. Félagið á sér ríka sögu en þurfti að endurstilla allt hjá félaginu eftir gjaldþrotið.
Franski miðjumaðurinn Adrien Rabiot er genginn í raðir Marseille og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Juventus rann út í sumar. Hann var orðaður við Man Utd og Liverpool í sumar en endaði á að skrifa undir í Frakklandi. Marseille er með tíu stig eftir fjóra leiki í frönsku deildinni. Mason Greenwood er stærsta stjarna Marseille en nú bætist franski landsliðsmaðurinn Rabiot við hópinn.
Anthony Martial, fyrrum sóknarmaður Manchester United, hefur gengið í raðir gríska félagsins AEK í Aþenu á frjálsri sölu. <i>„Töframaðurinn er að mæta,"</I> segir í tilkynningu AEK á samfélagsmiðlum. Martial lendir í grísku höfuðborginni í kvöld og ætla stuðningsmenn AEK að hópast á flugvöllinn og taka á móti honum. Þessi 28 ára leikmaður mun þéna yfir 450 milljónir íslenskra króna á ári. Hann var í níu ár hjá Manchester United en náði aldrei að sýna almennilegan stöðugleika. Hann sýndi hæfileika sína við og við en stóð ekki undir væntingum. Hann spilaði 317 leiki og skoraði 90 mörk. AEK er þriðja sigursælasta lið Grikklands, á eftir Olympiakos og Panathinaikos. Liðið er sem stendur á toppi grísku deildarinnar.
Ítalska félagið Roma hefur rekið Daniele De Rossi þegar aðeins fjórum umferðum er lokið í Seríu-A. De Rossi var ráðinn til að taka við af Jose Mourinho í janúar en Roma er án sigurs eftir fjóra deildarleiki á tímabilinu, þrír þeirra hafa endað með jafntefli og þá kom tap á heimavelli gegn Empoli í síðasta mánuði.
Hollenski miðjumaðurinn Davy Klaassen er kominn aftur heim í Ajax en þetta kemur fram í tilkynningu frá hollenska stórveldinu í dag.
HK tilkynnti í dag að fyrirliði kvennaliðsins, Brookelynn Entz, yrði ekki áfram hjá félaginu. Entz var hjá HK í tvö ár eftir að hafa fyrst komið til Íslands árið 2022 og spilað með Val. Hún er fædd árið 1998 og reyndist HK heldur betur vel þau tímabil sem hún spilaði með liðinu. Fyrra tímabilið skoraði hún tíu mörk í átján leikjum og í sumar skoraði hún þrettán mörk í átján leikjum.
Grótta staðfesti í dag að Gabríel Hrannar Eyjólfsson væri búinn að kveðja félagið og væri búinn að semja við KR um að spila með liðinu á næsta tímabili. Ásamt því að spila með KR mun hann koma að þjálfun yngri flokka í Vesturbænum. Gabríel er enn einn leikmaðurinn sem Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari og yfirmaður fótbotlamála hjá KR, þjálfaði á sínum tíma í 2. flokki KR.
KSÍ birti í dag á vef sínum drög að niðurröðun í Bestu-deild karla eftir tvískiptingu en stefnt er að því að fyrsti leikurinn verði viðureign KR og Vestra á sunnudaginn klukkan 14:00. Fyrsta umferðin klárast ekki fyrr en á miðvikudaginn því KA og Víkingur mætast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á laugardaginn. Hér að neðan má sjá drögin en mótið er þó enn í vinnslu og gæti breyst að einhverjum hluta. Lokaniðurröðun á að verða klár á morgun. Efstu tvö liðin, Víkingur og Breiðablik sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn mætast í Víkinni í lokaumferðinni 27. október ef planið verður (Staðfest).
Payton Woodward og Asha Zuniga hafa báðar yfirgefið HK en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Króatíski miðvörðurinn Dejan Lovren er genginn til liðs við gríska meistaraliðið PAOK en samningur hans til næstu tveggja ára.
Óskar Bragason er hættur þjálfun Magna á Grenivík en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
<p>Chelsea staðfesti í gær að David Datro Fofana væri farinn á lán til tyrkneska félagsins Goztepe út tímabilið.</p>
Nicolas Jackson er búinn að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við Chelsea og nú er hann samningsbundinn félaginu til 2033. Fyrri samningur var fram á sumarið 2031. Jackson er framherji sem Chelsea keypti sumarið 2023 og skoraði hann fjórtán mörk í úrvalsdeildinni á sínu fyrsta tímabili. Hann er þegar kominn með tvö mörk í þremur leikjum á þessu tímabili.
Andros Townsend er loksins laus úr óvissunni en hann er formlega orðinn leikmaður tyrkneska liðsins Antalyaspor. Þessi 33 ára leikmaður yfirgaf Luton í sumar og skrifaði undir hjá Antalyaspor sem gat hinsvegar ekki skráð hann þar sem félagið var í félagaskiptabanni. Því banni hefur verið aflétt og því loksins ljóst að Townsend er orðinn leikmaður félagsins.
Anton Ingi Rúnarsson þjálfari meistaraflokks kvenna hefur ákveðið að láta af störfum fyrir félagið. Frá þessu greinir Grindavík á samfélagsmiðlum sínum. Grindavík endaði í 8. sæti Lengjudeildar kvenna í sumar.
Argentínski þjálfarinn Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn sem nýr aðalþjálfari bandaríska landsliðsins eftir að hafa verið rekinn frá Chelsea í sumar.
Hull City í ensku Championship-deildinni hefur fengið Steven Alzate í sínar raðir. Alzate lék síðast með Brighton en samningur hans við úrvalsdeildarfélagið rann út í sumar. Þar sem hann var án félags gat hann samið við annað félag utan félagaskiptaglugga. Hann er 26 ára miðjumaður sem á aðbaki sjö landsleiki fyrir Kólumbíu.