Tanganga lánaður til Millwall (Staðfest)
Enski varnarmaðurinn Japhet Tanganga er mættur til Millwall á láni frá Tottenham Hotspur.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24432 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Enski varnarmaðurinn Japhet Tanganga er mættur til Millwall á láni frá Tottenham Hotspur.
Nígerískí sóknarmaðurinn Gift Orban er genginn í raðir franska félagsins Lyon frá Gent í Belgíu.
Norski miðjumaðurinn Olav Öby lék með KR á síðasta tímabili. Hann skrifaði undir tveggja ára samning hjá KR en eftir síðasta tímabil náðu hann og KR samkomulagi um að leiðir myndu skilja. Öby, sem er 29 ára gamall, er búinn að finna sér nýtt félag. Hann mun spila með Kjelsås á komandi tímabili.
Haley Marie Thomas, fyrirliði ÍBV síðustu tvö tímabil, fékk á dögunum félagaskipti til Þýskalands. Í morgun var hún svo tilkynnt sem nýr leikmaður Duisburg sem spilar í þýsku Bundesliga, efstu deild. Samningur hennar gildir út tímabilið en ef Duisburg heldur sér uppi er árs framlenging í boði. Hún verður þar liðsfélagi landsliðsmiðvarðarins Ingibjargar Sigurðardóttur sem gekk í raðir félagsins á dögunum.
Sevilla hefur fengið framherjann Mateo Mejia í sínar raðir frá Manchester United. Mejia er tvítugur og hefur verið í fjögur og hálft ár í akademíu Manchester United. Hann kom til enska félagsins frá Real Zaragoza árið 2019. Hann er fæddur í Zaragoza en getur einnig spilað með kólumbíska landsliðinu þar sem foreldrar hans eru þaðan. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir U20 landslið Kólumbíu í desember 2022.
Víðismenn eru að þétta raðirnar fyrir komandi átök í 3. deildinni og tilkynntu í morgun um komu leikmanns. Sá er spænskur framherji sem lék með Tindastóli á síðasta tímabili. David Toro heitir hann, er 26 ára og skoraði hann 8 mörk í 13 deildarleikjum. <i>„Þá hefur hann einnig leikið í neðri deildum Spánar og Ítalíu. Við bjóðum David hjartanlega velkominn til félagsins og hlökkum til að sjá hann á Nesfisk-vellinum í sumar,"</I> segir í tilkynningu Víðis.
Norski leikmaðurinn Emil Bohinen er mættur til Genoa á láni frá Salernitana.
Spænski vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilón er genginn í raðir Brentford á láni frá Tottenham Hotspur.
Ítalska félagið Napoli staðfesti í dag komu Hamed Traore frá Bournemouth en hann gerir lánssamning út tímabilið með möguleika á að gera skiptin varanleg í sumar.
Markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson hefur gert tveggja ára samning við ÍBV. Hann kemur frá HK þar sem hann hefur verið á samningi síðan 2018. Frá þessu greinir ÍBV nú rétt í þessu.
Portúgalska félagið Benfica hefur fengið varnarmanninn tvítuga Alvaro Fernandez frá Manchester United á lánssamningi út tímaibilið. Fernandez var áður í yngri liðum Real Madrid en hann var á láni hjá Granada fyrri hluta tímabilsins. <i>BBC</i> segir að Benfica sé með klásúlu um að geta keypt Fernandez á sex milljónir evra eftir tímabilið. Félagið er skyldugt til að kaupa hann ef hann byrjar 50% leikja eða fleiri. Þá gæti upphæðin hækkað um 3 milljónir evra til viðbótar að uppfylltum ákveðnum ákvæðum.
Njarðvík tilkynnti í dag um komu nýs leikmanns til félagsins. Amin Cosic er genginn í raðir félagsins frá HK og skrifar undir tveggja ára samning. Samningur hans við HK rann út í lok síðasta árs. <i>„Amin er 18 ára sóknarsinnaður leikmaður sem kemur til liðs við okkur frá HK þar sem hann er að ganga upp úr 2. flokki þar en þar hefur hann skorað mikið fyrir 2. flokks lið HK ásamt því að eiga 1 leik fyrir meistaraflokk HK sumarið 2022 í Lengjudeildinni,"</I> segir í tilkynningu Njarðvíkur.
Margrét Rún Stefánsdóttir er gengin til liðs við Gróttu eftir að hafa komið upp í gegnum yngriflokkastarfið á Sauðárkróki.
Liverpool er búið að lána varnarmanninn Rhys Williams til Port Vale út tímabilið, eftir misheppnaða dvöl á láni hjá Aberdeen í Skotlandi.
Danski markvörðurinn Mathias Rosenörn hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stjörnuna, samningurinn gildir út tímabilið 2026. Hann er þrítugur og varði mark Keflavíkur á síðasta tímabili. Hann mun hjá Stjörnunni fara í samkeppni við Árna Snæ Ólafsson sem varði mark liðsins á síðasta tímabili.
Daniele De Rossi hefur verið ráðinn stjóri Roma og skrifaði hann undir samning út tímabilið. Hann mun stýra sinni fyrstu æfingu hjá liðinu síðdegis. <i>„Eftir átján ára leikmannaferil hjá Roma snýr De Rossi heim sem aðalþjálfari. Hans fyrsti leikur verður gegn Verona á laugardag. Velkominn aftur heim,“</i> segir í tilkynningu Roma.
Svissneska knattspyrnusambandið var að tilkynna um stóra ráðningu því Pia Sundhage hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðsins í Sviss.
Eins og greint var frá á dögunum þá mun Þorri Stefán Þorbjörnsson spila með Fram í sumar. Fram hefur nú staðfest að Þorri er mættur til félagsins. Hann kemur á láni frá danska félaginu Lyngby. Hann samdi við Lyngby síðasta sumar, var keyptur þangað frá FH en hann er uppalinn í Fram.
Danski miðjumaðurinn Matthias Præst er genginn í raðir Fylkis á samningi út árið.
Landsliðskonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá Þrótti. Hún skrifar undir samning við Kópavogsfélagið sem gildir til ársins 2026. Hjá Breiðabliki hitti Olla, eins og hún er kölluð, gamla þjálfarann sinn, Nik Chamberlain.