Fotbolti.net
16.01.24 - 17:55
Ívan Guðjón Baldursson

Rhys Williams til Port Vale (Staðfest)

Rhys Williams til Port Vale (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liverpool er búið að lána varnarmanninn Rhys Williams til Port Vale út tímabilið, eftir misheppnaða dvöl á láni hjá Aberdeen í Skotlandi.
Williams fékk aðeins eitt tækifæri með Aberdeen á fyrri hluta tímabils og kom það í skoska deildabikarnum. Því ákvað Liverpool að endurkalla þennan 22 ára leikmann til baka og finna nýtt félag fyrir hann.

Port Vale leikur í League One, sem er þriðja efsta deild enska deildakerfisins. Liðið er þar í neðri hluta deildarinnar, með 30 stig eftir 25 umferðir.

Williams er samningsbundinn Liverpool til 2026 en virðist ekki eiga sér framtíð hjá félaginu. Hann tók þátt í 19 leikjum fyrir Liverpool þegar mikil meiðsli voru í varnarlínu liðsins tímabilið 2020-21 en hefur ekki fundið réttan takt síðan þá.

Hann var á láni hjá Blackpool á síðustu leiktíð og stóð sig vel þar áður en hann var endurkallaður til Liverpool í síðasta janúarglugga. Fyrir það var hann hjá Swansea City en lánsdvölin þar misheppnaðist.

Rhys Williams til Port Vale (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.