Fotbolti.net
17.01.24 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hjörvar Daði í ÍBV (Staðfest)

Hjörvar Daði í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍBV

Lengjudeildin
Markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson hefur gert tveggja ára samning við ÍBV. Hann kemur frá HK þar sem hann hefur verið á samningi síðan 2018.

Frá þessu greinir ÍBV nú rétt í þessu.
Hjörvar er 23 ára gamall og hefur hann leikið á láni frá HK síðustu þrjú tímabil, það fyrsta hjá ÍR og seinni tvö hjá Hetti/Hugin.

Á síðustu leiktíð var hann valinn besti leikmaður Hattar/Hugins en hann lék 21 af 22 leikjum liðsins og endaði tímabilið vel þar sem hann hélt hreinu í 3 af síðustu 6 leikjum liðsins.

„Knattspyrnudeild ÍBV býður Hjörvar velkominn til félagsins og Vestmannaeyja," segir í tilkynningu ÍBV.

ÍBV verður í Lengjudeildinni í sumar en liðið féll úr Bestu deildinni síðasta haust. Guy Smit varði mark liðsins á síðasta tímabili, var þá á láni frá Val. Jón Kristinn Elíasson var varamarkmaður fyrir Guy og gætu hann og Hjörvar farið í samkeppni um aðalmarkmannsstöðuna í sumar.

Komnir
Hjörvar Daði Arnarsson frá HK

Farnir
Elvis Bwomono til St. Mirren
Guy Smit (var á láni)
Bjarki Björn Gunnarsson í Víking R. (var á láni)
Halldór Jón Sigurður Þórðarson í Fylki
Breki Ómarsson
Filip Valencic
Kevin Bru
Michael Jordan Nkololo
Richard King til Jamaíku
Dwayne Atkinson til Jamaíku
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.