Fotbolti.net
17.01.24 - 20:31
Brynjar Ingi Erluson

Reguilón til Brentford (Staðfest)

Reguilón til Brentford (Staðfest)
Canon

Mynd: Brentford

Spænski vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilón er genginn í raðir Brentford á láni frá Tottenham Hotspur.
Manchester United sendi Reguilón aftur til Tottenham í byrjun mánaðarins í ljósi þess að Luke Shaw og Tyrell Malacia voru komnir aftur úr meiðslum.

Reguilón, sem er 27 ára gamall, var ekki í plönum Ange Postecoglou hjá Tottenham og því frjálst að halda annað.

Brentford hefur nú staðfest komu hans en hann kemur til félagsins á láni út leiktíðina.

Þetta er því þriðji lánssamningur hans á síðasta eina og hálfa árinu, en hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá Atlético Madríd í heimalandinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.