Margrét Rún í Gróttu (Staðfest)

Mynd: Eyjólfur Garðarsson / Grótta

Mynd: Eyjólfur Garðarsson / Grótta

Margrét Rún Stefánsdóttir er gengin til liðs við Gróttu eftir að hafa komið upp í gegnum yngriflokkastarfið á Sauðárkróki.
Margrét er varamarkvörður Tindastóls og fékk að spila einn leik í fallbaráttu Bestu deildarinnar í fyrra - mikilvægan úrslitaleik gegn ÍBV sem vannst 7-2.
Margrét er fædd 2005 og á fjóra leiki að baki fyrir U16 og U17 landslið Íslands. Í heildina hefur hún spilað 14 KSÍ-leiki með meistaraflokki Tindastóls.
„Knattspyrnudeild Gróttu fagnar komu Margrétar til félagsins og hlakkar til að fylgjast með henni í komandi verkefnum hjá félaginu!" segir meðal annars í yfirlýsingu frá félaginu.
Grótta leikur í Lengjudeild kvenna með það að markmiði að berjast um sæti í efstu deild. Seltirningar enduðu í fjórða sæti á síðustu leiktíð, fimm stigum frá sæti í Bestu deildinni.