Fyrirliðinn farinn frá ÍBV og spilar með Ingibjörgu í Þýskalandi (Staðfest)

Haley er 24 ára og kom til ÍBV frá Bandaríkjunum fyrir tímabilið 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haley Marie Thomas, fyrirliði ÍBV síðustu tvö tímabil, fékk á dögunum félagaskipti til Þýskalands.
Í morgun var hún svo tilkynnt sem nýr leikmaður Duisburg sem spilar í þýsku Bundesliga, efstu deild. Samningur hennar gildir út tímabilið en ef Duisburg heldur sér uppi er árs framlenging í boði.
Hún verður þar liðsfélagi landsliðsmiðvarðarins Ingibjargar Sigurðardóttur sem gekk í raðir félagsins á dögunum.

Haley er miðvörður sem getur einnig spilað fleiri stöður á vellinum. Hún lék alla 18 leiki ÍBV tímabilið 2022 og alla 21 leikina á síðasta tímabili þegar ÍBV féll úr efstu deild.
Duisburg er í mikilli fallbaráttu í þýsku deildinni en vonandi ná þær Haley og Ingibjörg að laga eitthvað til í varnarleik liðsins.
Liðið er í botnsæti deildarinanr og hefur fengið á sig 32 mörk í tíu leikjum. Tólf umferðir eru eftir af deildinni og er liðið sem stendur fjórum stigum frá öruggu sæti. Fyrsti leikur eftir vetrarfrí er gegn Nurnberg þann 28. janúar.