Njarðvík fær Amin Cosic frá HK (Staðfest)

Mynd: Njarðvík

Mynd: Njarðvík

Njarðvík tilkynnti í dag um komu nýs leikmanns til félagsins. Amin Cosic er genginn í raðir félagsins frá HK og skrifar undir tveggja ára samning. Samningur hans við HK rann út í lok síðasta árs.
„Amin er 18 ára sóknarsinnaður leikmaður sem kemur til liðs við okkur frá HK þar sem hann er að ganga upp úr 2. flokki þar en þar hefur hann skorað mikið fyrir 2. flokks lið HK ásamt því að eiga 1 leik fyrir meistaraflokk HK sumarið 2022 í Lengjudeildinni," segir í tilkynningu Njarðvíkur.

Amin hefur æft með Njarðvíkurliðinu í vetur og náði að heilla þjálfara liðsins.
„Amin er ungur og efnilegur leikmaður sem mér var bent á frá vini mínum úr Kópavogi og við fengum hann á reynslu til okkar í vetur. Hann hreif mig strax með sinni tækni, ákefð og styrk og hlakkar mig til að vinna með honum næstu árin og hjálpa honum að verða sá leikmaður sem hann vill og getur orðið," sagði þjálfarinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson við undirskrift.
Amin sjálfur hafði þetta að segja um komuna til Njarðvíkur:
„Mér líst mjög vel á strákana og stemminguna í klefanum. Þetta er góður hópur, ásamt góðu þjálfarateymi sem ég get ekki beðið eftir að byrja spila með. Ég tel okkur hafa gott potential í að gera góða hluti á þessu tímabili.“
Amin er sonur Almir Cosic sem lék með HK fyrir rúmum áratug síðan.
Komnir
Amin Cosic frá HK
Björn Aron Björnsson frá Víði Garði
Martin Klein frá Víkingi í Götu
Farnir
Marc McAusland í ÍR
Rafael Victor í Þór
Kristófer Snær Jóhannsson til Molde
Luqman Hakim til Kortrijk (var á láni)
Tómas Þórisson til Víkings R. (var á láni)
Walid Birrou Essafi til Gíbraltar