Tanganga lánaður til Millwall (Staðfest)

Mynd: Millwall

Mynd: Millwall
Enski varnarmaðurinn Japhet Tanganga er mættur til Millwall á láni frá Tottenham Hotspur.
Þessi 24 ára gamli miðvörður eyddi fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Augsburg í Þýskalandi en spilaði ekki leik fyrir félagið og kallaði Tottenham hann því til baka.
Tanganga var fljótur að finna sér nýtt félag en þrjú félög í ensku B-deildinni sýndu honum mikinn áhuga.
Leikmaðurinn valdi það að semja við Millwall út tímabilið og mun hann eflaust fá töluvert meiri spiltíma þar en í Þýskalandi.
Millwall er í 16. sæti B-deildarinnar með 32 stig, átta stigum frá umspilssæti.

Japhet Tanganga has joined Championship side Millwall on loan for the remainder of the season.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) January 18, 2024
Go well, Japh! ????