Matthias Præst í Fylki (Staðfest)

Matthias Præst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthias Præst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski miðjumaðurinn Matthias Præst er genginn í raðir Fylkis á samningi út árið.
Præst er 23 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem er uppalinn hjá Vejle í Danmörku en var einnig á mála hjá Horsens um tíma. Undanfarin tímabil hefur hann spilað í Færeyjum með AB Argir og HB í Þórshöfn.
Leikmaðurinn kom hingað til lands fyrir áramót og var staðráðinn í að sanna sig en Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, sagði í desember að félagið væri að vonast til að semja við hann.
„Hann heillaði mikið á þeim æfingum og leikjum sem hann hefur spilað með liðinu og kemur til með að styrkja okkar unga og efnilega lið mikið," segir í tilkynningu Fylkis.
Fylkir hafnaði í áttunda sæti Bestu deildarinnar í fyrra en liðið stefnir væntanlega á að gera betur á næstu leiktíð.