Fotbolti.net
17.01.24 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Benfica fær Fernandez frá Man Utd (Staðfest)

Alvaro Fernandez á æfingu hjá United.

Alvaro Fernandez á æfingu hjá United.

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska félagið Benfica hefur fengið varnarmanninn tvítuga Alvaro Fernandez frá Manchester United á lánssamningi út tímaibilið.

Fernandez var áður í yngri liðum Real Madrid en hann var á láni hjá Granada fyrri hluta tímabilsins.

BBC segir að Benfica sé með klásúlu um að geta keypt Fernandez á sex milljónir evra eftir tímabilið. Félagið er skyldugt til að kaupa hann ef hann byrjar 50% leikja eða fleiri.

Þá gæti upphæðin hækkað um 3 milljónir evra til viðbótar að uppfylltum ákveðnum ákvæðum.
Fernandez er 20 ára gamall og þykir mikið efni. Hann gerði góða hluti á láni hjá Preston North End í Championship deildinni á síðustu leiktíð og var svo lánaður til Granada síðasta haust en dvölin á Spáni var ekki sú besta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.