Fotbolti.net
16.01.24 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pia Sundhage tekur við Sviss (Staðfest)

Pia Sundhage.

Pia Sundhage.

Canon

Mynd: EPA

Hertz
Svissneska knattspyrnusambandið var að tilkynna um stóra ráðningu því Pia Sundhage hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðsins í Sviss.
Hún fær það verkefni að stýra Sviss á Evrópumótinu á næsta ári, en Sviss er að halda mótið.

Sundhage, sem er 63 ára gömul, hefur náð fræknum árangri á sínum þjálfaraferli. Hún spilaði lengi og vel með sænska landsliðinu og hefur hún stýrt landsliðum Bandaríkjanna, Svíþjóðar og Brasilíu á síðustu árum.

Hún varð tvöfaldur Ólympíumeistari með Bandaríkjunum en hún stýrði liðinu til gullverðlauna 2008 og 2012.

„Það eru forréttindi að stýra liði þegar pressan er svona mikil. Ég elska það," segir Sundhage um nýja starfið sitt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.