Fotbolti.net
16.01.24 - 09:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Olla Sigga í Breiðablik (Staðfest)

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir.

Canon

Mynd: Breiðablik

Hertz
Landsliðskonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá Þrótti. Hún skrifar undir samning við Kópavogsfélagið sem gildir til ársins 2026.

Hjá Breiðabliki hitti Olla, eins og hún er kölluð, gamla þjálfarann sinn, Nik Chamberlain.
Hún er fædd árið 2003 og er uppalin hjá Val en hefur spilað með Þrótti síðustu ár. Olla á fjóra A-landsleiki og skoraði hún tvö mörk í sínum fyrsta landsleik.

Hún var útnefnd nýliði ársins í Ivy League-deildinni þar sem hún leikur með Harvard háskólanum. Ólöf var markahæsti leikmaður skólans með sjö mörk í fimmtán leikjum ásamt því að gefa tvær stoðsendingar.

Hún kemur til með að spila fyrri hluta tímabilsins með Breiðabliki áður en hún fer út í háskóla.

Breiðablik hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.