Albert fær nýjan liðsfélaga frá Salernitana (Staðfest)

Mynd: Genoa

Mynd: Genoa
Norski leikmaðurinn Emil Bohinen er mættur til Genoa á láni frá Salernitana.
Bohinen er 24 ára gamall miðjumaður og sonur Lars Bohinen, fyrrum leikmanns Blackburn Rovers og Derby County.
Emil spilaði fyrir Stabæk áður en rússneska félagið CSKA Moskva keypti hann árið 2021.
Hann staldraði stutt við í Rússlandi og ákvað að fara til Salernitana á láni í janúar fyrir tveimur árum áður en ítalska félagið keypti hann um sumarið.
Bohinen mun klára tímabilið með Genoa á láni frá Salernitana, en Genoa mun gera skiptin varanleg í sumar.
Hann er því nýr liðsfélagi Alberts Guðmundssonar, sem hefur verið gera stórkostlega hluti á leiktíðinni.