Olav Öby í norsku C-deildina (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norski miðjumaðurinn Olav Öby lék með KR á síðasta tímabili. Hann skrifaði undir tveggja ára samning hjá KR en eftir síðasta tímabil náðu hann og KR samkomulagi um að leiðir myndu skilja.
Öby, sem er 29 ára gamall, er búinn að finna sér nýtt félag. Hann mun spila með Kjelsås á komandi tímabili.

TENGT EFNI
Ole Martin tekinn við varaliði Brann (Staðfest)
Kjelsås er í norsku C-deildinni, liðið endaði í 6. sæti riðils 1 á síðasta tímabili, níu stigum fyrir ofan fallsæti og 27 stigum frá sæti í B-deildinni.
Öby lék 28 leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Hann var ekki eini Norðmaðurinn sem lék með KR á síðasta tímabili því Simen Kjellevold var aðalmarkvörður liðsins. Simen hefur að undanförnu æft með Åsane sem endaði í 12. sæti norsku B-deildarinnar á síðasta tímabili. Simen er með skráðan samning við KR út næsta tímabil.