Ásgeir Marteins í Þrótt Vogum (Staðfest)
Ásgeir Marteinsson samdi í dag við Þrótt Vogum um að spila með liðinu næstu tvö árin, en hann kemur frá Aftureldingu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24437 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Ásgeir Marteinsson samdi í dag við Þrótt Vogum um að spila með liðinu næstu tvö árin, en hann kemur frá Aftureldingu.
Böðvar Böðvarsson hefur yfirgefið sænska félagið Trelleborg en samningur hans rann út eftir að tímabilinu lauk. Hann var í tvö ár hjá Trelleborg en áður hafði hann verið í eitt ár hjá Helsingborg. Alls haf því árin verið þrjú í Svíþjóð en hann kom til landsins eftir að hafa spilað með pólska félaginu Jagiellonia.
Markvörðurinn Daði Freyr Arnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH og er nú bundinn félaginu til 2025. Daði er 25 ára og var varamarkvörður FH stærstan hluta síðasta tímabils. Hann varð þó aðalmarkvörður eftir meiðsli Sindra Kristins Ólafssonar og fékk hrós fyrir sína innkomu.
<p>Snædís María Jörundsdóttir er gengin alfarið til liðs við FH frá Stjörnunni.</p>
Ole Martin Nesselquist, sem var aðstoðarmaður Rúnars Kristinssonar hjá KR á síðasta tímabili, verður samkvæmt heimildum Fótbolta.net ekki áfram hjá félaginu. <b>Uppfært 16:10:</b> KR birti rétt í þessu tilkynningu þar sem tíðindin voru staðfest. Tilkynninguna má sjá neðst í fréttinni. Þar kemur fram að Ole Martin hafi óskað eftir leyfi frá KR til að gerast aðalþjálfari hjá liði í heimalandinu Noregi. Ole Martin er þrítugur Norðmaður sem var ráðinn til KR fyrir ári síðan. Hann var aðstoðarþjálfari liðsins og sagði Gregg Ryder, nýr þjálfari KR, að <a href="https://www.fotbolti.net/news/28-10-2023/gregg-ryder-nyr-thjalfari-kr-eg-er-med-svart-og-hvitt-i-blodinu#:~:text=Ole%20Martin%20l%C3%ADka%20a%C3%B0sto%C3%B0ar%C3%BEj%C3%A1lfari.%20Hann%20er%20h%C3%A9rna%20enn%C3%BE%C3%A1%20og%20ver%C3%B0ur%20%C3%BEa%C3%B0." target="_blank">Ole Martin yrði áfram hjá félaginu.</a>
Yannick Bolasie er genginn í raðir Swansea City á frjálsri sölu en hann gerir skammtímasamning við velska félagið.
Alda Ólafsdóttir, langmarkahæsti leikmaður 2. deildar í sumar, er gengin í raðir Fram frá Fjölni.
Miðvörðurinn Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir hefur skrifað undir samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Örebro. Hún kemur til félagsins frá Selfossi en hún skrifar undir samning sem gildir til ársins 2025.
Króatíski þjálfarinn Nenad Bjelica er tekinn við Union Berlín í Þýskalandi.
<p>Dagur Austmann Hilmarsson er genginn til liðs við Fjölni og mun leika með liðinu næstu árin.</p>
Höttur/Huginn hefur samið við annan spænskan leikmann um að leika með liðinu í 2. deild karla næsta sumar. Nýjasti leikmaðurinn heitir Genis Arrastraria en fyrr í vikunni tilkynnti félagið að miðjumaðurinn Rafa Llop væri búinn að semja við félagið. Báðir koma þeir til Hattar/Hugins í gegnum umboðsskrifstofuna <i>Áfram Football</I>.
Fylkir tilkynnti rétt í þessu að Gunnlaugur Fannar Guðmundsson væri genginn í raðir félagsins og hefði skrifað undir tveggja ára samning. Gunnlaugur kemur frá Keflavík þar sem hann lék 22 leiki í deild og tvo í bikarnum á nýliðinni leiktíð. Síðustu þrjú tímabil á undan hafði hann spilað með Kórdrengjum.
Þór tilkynnti í dag að Rafael Victor væri genginn í raðir félagsins og hefði skrifað undir tveggja ára samning. Rafael er 27 ára portúgalskur framherji. Hann kemur frá Njarðvík þar sem hann gerði þrettán mörk á síðustu leiktíð sem gerði hann að þriðja markahæsta leikmanni Lengjudeildarinnar á tímabilinu.
Katla Tryggvadóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska félagið Kristianstad. Katla kemur til félagsins frá Þrótti í Reykjavík þar sem hún hefur leikið frá því í fyrra.
Sænska félagið Öster tilkynnti í dag að Srdjan Tufegdzic - Túfa - yrði ekki áfram sem þjálfari liðsins. Túfa var þjálfari liðsins í tvö tímabil, tók við liðinu fyrir tímabilið 2022 og náði umspilssæti um sæti í efstu deild. Það var mjög góður árangur. Liðið ætlaði sér mjög stóra hluti á þessu tímabili, endaði í fjóra sæti, rétt missti af umspilssæti og voru það vonbrigði.
Varnarmaðurinn Alberto Sánchez er genginn til liðs við Reyni Sandgerði frá Kormáki/Hvöt.
Oumar Niasse, fyrrum leikmaður Everton og Hull, er genginn í raðir Macclesfield FC. Hann á þó eftir að fá leikheimild með félaginu og er beðið eftir því frá sambandinu. Macclesfield FC er í sjöundu efstu deild á Englandi, Northern Premier League.
Arnór Borg Guðjohnsen er genginn í raðir FH frá Víkingi. Þetta tilkynnti FH á samfélagsmiðlum sínum í dag. Sóknarmaðurinn lék á láni með FH seinni hluta tímabilsins á láni frá Víkingi en skiptir nú alfarið yfir. Hann átti ár eftir af samningi sínum við Víking.
Grótta tilkynnti í dag að tveir leikmenn væru að ganga í raðir félagsins. Það eru þeir Valdimar Daði Sævarsson og Eirik Brennhaugen. Valdimar kemur frá Þór og Norðmaðurinn Eirik kemur frá Stjördals-Blink sem var í þriðju efstu deild í Noregi á liðinni leiktíð. Báðir skrifa þeir undir tveggja ára samninga við Gróttu. Valdimar, sem er 21 árs, er kantmaður sem lék með KV áður en hann hélt norður fyrir síðasta sumar. Hann getur einnig leyst fleiri stöður fram á við. Hann á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði þrjú mörk í þrettán deildarleikjum fyrir Þór á liðinni leiktíð.
<p>PSG hefur nýtt kaupréttinn á Goncalo Ramos frá Benfica.</p>