Fotbolti.net
22.11.23 - 18:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson

PSG klárar kaupin á Goncalo Ramos (Staðfest)

PSG klárar kaupin á Goncalo Ramos (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

PSG hefur nýtt kaupréttinn á Goncalo Ramos frá Benfica.

Þessi 22 ára gamli Portúgali gekk til liðs við PSG frá Benfica á láni í sumar en PSG gat keypt hann fyrir 80 milljónir evra sem félagið hefur nú gert. 15 milljónir af því eru árangurstengdar.

Samningurinn hans gildir til ársins 2028.

Ramos hefur leikið 15 leiki fyrir franska liðið og skorað tvö mörk. Hann er uppalinn hjá Benfica þar sem hann lék 106 leiki og skoraði 41 mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.