Höttur/Huginn fær annan Spánverja (Staðfest) - Spasic ekki áfram

Mynd: Höttur/Huginn

Mynd: Höttur/Huginn
Höttur/Huginn hefur samið við annan spænskan leikmann um að leika með liðinu í 2. deild karla næsta sumar.
Nýjasti leikmaðurinn heitir Genis Arrastraria en fyrr í vikunni tilkynnti félagið að miðjumaðurinn Rafa Llop væri búinn að semja við félagið. Báðir koma þeir til Hattar/Hugins í gegnum umboðsskrifstofuna Áfram Football.

„Gott samstarf vð Nacho og Áfram Football tryggir að Genis mun spila með okkur næsta sumar. Hér er um að ræða fljótan og sterkan varnarmann sem jafnframt getur leyst stöður á miðjunni," segir í tilkynningu Hattar/Hugins.
„Hann er 23 ára og það vill svo til að hann og Rafa, sem einnig mun leika með okkur, eru bestu félagar."
Þá er það ljóst að varnarmaðurinn Stefan Spasic verður ekki áfram hjá félaginu næsta sumar.
Spasic, sem er fæddur árið 1992, hefur leikið með Hetti/Hugin frá 2021. Þar áður lék hann með Víði og Hugin.
Höttur/Huginn endaði í sjötta sæti 2. deildar í sumar en stefnan er eflaust sett á að gera enn betur á næstu leiktíð.