Fotbolti.net
24.11.23 - 16:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gunnlaugur Fannar í Fylki (Staðfest)

Gunnlaugur Fannar í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir tilkynnti rétt í þessu að Gunnlaugur Fannar Guðmundsson væri genginn í raðir félagsins og hefði skrifað undir tveggja ára samning.

Gunnlaugur kemur frá Keflavík þar sem hann lék 22 leiki í deild og tvo í bikarnum á nýliðinni leiktíð. Síðustu þrjú tímabil á undan hafði hann spilað með Kórdrengjum.
Hann er 29 ára gamall varnarmaður sem lék á sínum tíma þrjá leiki með yngri landsliðum Íslands. Hann er uppalinn á Álftanesi og í Haukum og hefur í meistaraflokki leikið með Haukum, Víkingi, Kórdrengjum og Keflavík.

Hann er annar leikmaðurinn sem Fylkir krækir í eftir að síðasta tímabil kláraðist. Áður hafði Guðmundur Tyrfingsson komið í félagið frá Selfossi.

„Við bjóðum Gunnlaug velkominn til félagsins og hlökkum til að sjá hann spreyta sig á vellinum í appelsínugulu," segir í tilkynningu Fylkis.

Komnir
Guðmundur Tyrfingsson frá Selfossi
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson frá Keflavík
Aron Örn Þorvarðarson frá Haukum (var á láni)
Hallur Húni Þorsteinsson frá Haukum (var á láni)

Farnir
Sveinn Gísli Þorkelsson í Víking R. (var á láni)

Samningslausir
Arnór Gauti Jónsson (2002) - 31.12
Ólafur Karl Finsen (1992) - 16.11
Axel Máni Guðbjörnsson (2002) - 31.12
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.