Alberto Sánchez í Reyni (Staðfest) - Tveir framlengja

Mynd: Reynir Sandgerði

Mynd: Reynir Sandgerði
Varnarmaðurinn Alberto Sánchez er genginn til liðs við Reyni Sandgerði frá Kormáki/Hvöt.
Sánchez er 27 ára gamall og spilar stöðu miðvarðar en hann var feikilega öflugur í liði Kormáks/Hvatar sem fór með Reyni upp í 2. deild.
Leikmaðurinn spilaði 16 leiki og skoraði fimm mörk, en hann mun taka ævintýrið með Reynismönnum í 2. deildinni. Hann skrifaði í gær undir tveggja ára samning við félagið og þá framlengdu tveir aðrir.
Ársæll Kristinn Björnsson og Sindri Lars Guðmundsson gerðu báðir eins árs samning við Reyni.
Báðir eru uppaldir í Sandgerði en Ársæll er 25 ára gamall varnarmaður sem hefur spilað 189 leiki fyrir Reyni á meðan Sindri Lars er 24 ára gamall miðjumaður sem á 84 leiki og 10 mörk.