Fotbolti.net
24.11.23 - 12:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Túfa látinn fara frá Öster (Staðfest)

Túfa látinn fara frá Öster (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsent

Sænska félagið Öster tilkynnti í dag að Srdjan Tufegdzic - Túfa - yrði ekki áfram sem þjálfari liðsins.

Túfa var þjálfari liðsins í tvö tímabil, tók við liðinu fyrir tímabilið 2022 og náði umspilssæti um sæti í efstu deild. Það var mjög góður árangur. Liðið ætlaði sér mjög stóra hluti á þessu tímabili, endaði í fjóra sæti, rétt missti af umspilssæti og voru það vonbrigði.
Túfa er þakkað fyrir vel unnin störf og tekið fram að fagmennska og drifkraftur hafi einkennt hans störf.

„Ég vil þakka leikmönnunum. starfsliðinu, stuðningsmönnum og öllu félaginu fyrir tímann. Ég óska öllum hjá félaginu því besta í framtíðinni."

Túfa er 43 ára, fæddur í Serbíu og kom til Íslands árið 2006 og lék með KA. Þar hóf hann þjálfaraferil sinn, stýrði svo Grindavík tímabilið 2019 og var aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val tímablin 2020 og 2021.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.