Arnór Borg skiptir alfarið í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Borg Guðjohnsen er genginn í raðir FH frá Víkingi. Þetta tilkynnti FH á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Sóknarmaðurinn lék á láni með FH seinni hluta tímabilsins á láni frá Víkingi en skiptir nú alfarið yfir. Hann átti ár eftir af samningi sínum við Víking.

Arnór skrifar undir þriggja ára samning við Fimleikafélagið.
Arnór er 23 ára og hefur verið hjá Víkingi í tvö ár. Áður var hann hjá Fylki og þar áður var hann á mála hjá velska liðinu Swansea.
Hann er annar leikmaðurinn sem FH krækir í í þessari viku. Fyrr í vikunni var greint frá því að félagið hefði keypt Kjartan Kára Halldórsson frá norska félaginu Haugesund.