Þór tilkynnti í dag að Rafael Victor væri genginn í raðir félagsins og hefði skrifað undir tveggja ára samning. Rafael er 27 ára portúgalskur framherji.
Hann kemur frá Njarðvík þar sem hann gerði þrettán mörk á síðustu leiktíð sem gerði hann að þriðja markahæsta leikmanni Lengjudeildarinnar á tímabilinu.
Hann kemur frá Njarðvík þar sem hann gerði þrettán mörk á síðustu leiktíð sem gerði hann að þriðja markahæsta leikmanni Lengjudeildarinnar á tímabilinu.
Hann hefur einnig leikið með Þrótti og Hetti/Huginn hér á landi auk þess að hafa spilað sem atvinnumaður í Póllandi og Ísrael auk heimalands síns á ferlinum.
„Ég valdi Þór af því að ég trúi á það verkefni sem þeir eru með í gangi. Ég fann að þeir höfðu virkilega trú á mínum hæfileikum og trúa að ég geti hjálpað þeim að ná markmiðum félagsins. Ég hlakka til að hefja þetta ferðalag," sagði Rafael Victor við undirskrift.
Lykilatriði að styrkja leikmannahópinn með auknum gæðum
„Það er okkur í stjórn knattspyrnudeildar Þórs mikið ánægjuefni að tilkynna að náðst hefur samkomulag við Rafael Victor um að spila með okkur Þórsurum næstu tvö árin. Síðustu ár hjá Þór hafa verið keyrð áfram á uppbyggingarstefnu og hafa margir ungir leikmenn fengið tækifæri í Þórsliðinu og staðið sig vel. Á því góða starfi hefur verið byggður grunnur að bjartri framtíð og samhliða því að áfram verði spilað á ungum og efnilegum Þórsurum þá teljum við lykilatriði að styrkja leikmannahópinn með auknum gæðum til að skapa samkeppni um hverja leikstöðu og styðja þannig við framþróun liðsins. Velkominn í Þorpið Rafa!“ sagði formaður knattspyrnudeildar Sveinn Elías Jónsson.
Komnir
Rafael Victor frá Njarðvík
Atli Þór Sindrason frá Kormáki/Hvöt (var á láni)
Auðunn Ingi Valtýsson frá Dalvík/Reyni (var á láni)
Rafnar Máni Gunnarsson frá Völsungi (var á láni)
Sigfús Fannar Gunnarsson frá Dalvík/Reyni (var á láni)
Viðar Már Hilmarsson frá Magna (var á láni)
Farnir
Bjarni Guðjón Brynjólfsson í Val
Valdimar Daði Sævarsson í Gróttu
Kristján Atli Marteinsson
Sigurður Marinó Kristjánsson hættur
Athugasemdir