Oumar Niasse í sjöundu efstu deild Englands (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Oumar Niasse, fyrrum leikmaður Everton og Hull, er genginn í raðir Macclesfield FC. Hann á þó eftir að fá leikheimild með félaginu og er beðið eftir því frá sambandinu.
Macclesfield FC er í sjöundu efstu deild á Englandi, Northern Premier League.

Niasse lék níu leiki með Morecambe í ensku C-deildinni á síðasta tímabili.
Hann er 33 ára sóknarmaður sem skoraði tólf mörk í 65 úrvalsdeildarleikjum með Everton, Hull og Cardiff á árunum 2016-2020. Hann var keyptur til Everton frá Lokomotiv Moskvu í lok janúargluggans 2016. Everton greiddi um 13,5 milljónir punda fyrir hann.
Hann lék á sínum tíma með senegalska landsliðinu.