Grótta krækir í Valdimar Daða og norskan varnarmann (Staðfest)

Valdimar Daði

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Eirik Brennhaugen.

Mynd: Grótta

Grótta tilkynnti í dag að tveir leikmenn væru að ganga í raðir félagsins. Það eru þeir Valdimar Daði Sævarsson og Eirik Brennhaugen. Valdimar kemur frá Þór og Norðmaðurinn Eirik kemur frá Stjördals-Blink sem var í þriðju efstu deild í Noregi á liðinni leiktíð. Báðir skrifa þeir undir tveggja ára samninga við Gróttu.
Valdimar, sem er 21 árs, er kantmaður sem lék með KV áður en hann hélt norður fyrir síðasta sumar. Hann getur einnig leyst fleiri stöður fram á við. Hann á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði þrjú mörk í þrettán deildarleikjum fyrir Þór á liðinni leiktíð.

Eirik er 23 ára örvfættur varnarmaður sem á að baki yngri landsleiki fyrir Noreg. Í tilkynningu Gróttu kemur fram að Eirik sé þjálfari sem þjálfað hefur í akademíu Rosenborg síðustu ár. Hann mun koma að þjálfun yngri flokka Gróttu meðfram því að spila með meistaraflokknum.
„Við erum virkilega ánægð að hafa klófest Valda. Hann er enn ungur og efnilegur og við sjáum fram á að geta þróað hann í hann í kantmann í hæsta gæðaflokki. Hann er virkilega efnilegur en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann mikla leikreynslu. Það er mikil vinna fram undan og við erum spenntir fyrir þróun hans,“ sagði Chris Brazell þjálfari Gróttu.
Chris telur Eirik passa vel inn í Gróttuliðið: „Við teljum að Eirik passi vel inn í hugmyndafræði okkar. Síðustu misseri höfum við fundið leikmenn erlendis frá sem eru faldir gimsteinar. Grótta gefur þeim færi á þróa sinn leik og færa sig ofar í fótboltaheiminum. Síðustu ár höfum við fundið leikmenn með fjölbreyttan bakgrunn sem eru fyrirmyndir fyrir unga iðkendur Gróttu. Eirik passar fullkomlega í það en fyrst og fremst teljum við hann mikið efni á fótboltavellinum.“
Grótta endaði í 9. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.
Komnir
Valdimar Daði Sævarsson frá Þór
Eirik Brennhaugen frá Noregi
Ólafur Karel Eiríksson frá Haukum (var á láni)
Kristófer Leví Sigtryggsson frá KFG (var á láni)
Kári Eydal frá KV (var á láni)
Ívan Óli Santos frá ÍR (var á láni)
Hannes Ísberg Gunnarsson frá KV (var á láni)
Gunnar Hrafn Pálsson frá KV (var á láni)
Farnir
Arnar Númi Gíslason í Breiðablik (var á láni)
Pétur Theódór Árnason í Breiðablik (var á láni)
Sigurður Steinar Björnsson í Víking R. (var á láni)
Samningslausir
Tómas Johannessen
Gunnar Jónas Hauksson 31.12
Júlí Karlsson 11.12
Kristófer Melsted 30.11
Arnar Þór Helgason 30.11
Axel Sigurðarson
Tumeliso Ratsiu