Dagur Austmann í Fjölni (Staðfest)


Mynd: Fjölnir Facebook


Mynd: Fjölnir Facebook

Dagur Austmann Hilmarsson er genginn til liðs við Fjölni og mun leika með liðinu næstu árin.
Dagur semur við FJölni eftir að hafa rift samningi sínum við Grindavík eftir síðasta tímabil.
Hann er 25 ára gamall varnarmaður sem er uppalinn í Stjörnunni. Hann hefur einnig leikið með Aftureldingu, ÍBV, Þrótt R og Leikni auk þess að hafa spilað í akademíu FCK í danmörku.
Hjá Fjölni hittir hann fyrir tvíburabróður sinn Mána Austmann.
Fjölnir hafnaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar síðasta sumar og tapaði gegn Vestra í undanúrslitum umspilsins.



