Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24442 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR25.09.2023, 08:00

Mislintat farinn frá Ajax eftir ofbeldi gærdagsins (Staðfest)

Sven Mislintat var ráðinn inn til Ajax í sumar til að hjálpa til í leikmannamálum félagsins en hefur strax hrökklast úr starfi sem yfirmaður fótboltamála. Þetta staðfesti Ajax með yfirlýsingu í gærkvöldi.

FRÉTTIR24.09.2023, 12:39

Marc McAusland yfirgefur Njarðvík (Staðfest)

Skoski varnarmaðurinn Marc McAusland mun yfirgefa Njarðvík þegar þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

FRÉTTIR23.09.2023, 14:30

Arnar aðstoðarþjálfari Njarðvíkur næstu árin (Staðfest)

Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkur skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við félagið á dögunum. Njarðvík staðfesti í dag að Arnar Smárason muni starfa áfram sem aðstoðarþjálfari liðsins næstu tvö árin.

FRÉTTIR22.09.2023, 18:40

Montella tekinn við Tyrklandi (Staðfest)

Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur staðfest samkomulag við ítalska þjálfarann Vincenzo Montella um að taka við stjórn á landsliðinu næstu þrjú árin.

FRÉTTIR22.09.2023, 09:57

Nagelsmann stýrir Þýskalandi á EM (Staðfest)

Þýska fótboltasambandið hefur staðfest ráðningu á Julian Nagelsmann og mun hann stýra Þýskalandi á EM á næsta ári, þar sem Þjóðverjar eru gestgjafar. Nagelsmann, sem var rekinn frá Bayern München í mars, skrifaði undir samning sem gildir framyfir Evrópumótið.

FRÉTTIR22.09.2023, 09:02

Ödegaard skrifaði undir nýjan fimm ára samning (Staðfest)

Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið. Norski miðjumaðurinn, 24 ára, hefur skorað 27 mörk og átt 15 stoðsendingar í 112 leikjum fyrir félagið. Ödegaard kom fyrst til Arsenal á láni en gekk alfarið í raðir félagsins frá Real Madrid í ágúst 2021. Hann lék í 37 af 38 deildarleikjum á síðasta tímabili, þegar Arsenal endaði í öðru sæti.

FRÉTTIR21.09.2023, 16:30

Síðasti leikur Kodro var gegn Íslandi (Staðfest)

Bosníska fótboltasambandið hefur gefið út tilkynningu þess efnis að búið sé að reka Meho Kodro úr starfi landsliðsþjálfara. Hans síðasti leikur var 1-0 tap gegn Íslandi á Laugardalsvelli þar sem Alfreð Finnbogason gerði sigurmarkið í uppbótartíma. Hann hafði verið 30 daga í starfinu þegar kom að leiknum gegn Íslandi.

FRÉTTIR20.09.2023, 13:47

Svava Rós til Benfica (Staðfest)

Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir er gengin í raðir portúgalska félagsins Benfica frá Gotham FC í Bandaríkjunum. Portúgalska félagið var að staðfesta þessi tíðindi.

FRÉTTIR19.09.2023, 18:40

Ian Jeffs hættur með Þrótt (Staðfest)

Ian Jeffs hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Þrótti en þetta kemur fram í yfirlýsingu knattspyrnudeildar félagsins í dag.

FRÉTTIR18.09.2023, 20:32

Hannah Cade yfirgefur Tindastól (Staðfest)

Hannah Jane Cade hefur spilað sinn síðasta leik fyrir meistaraflokk Tindastóls en hún hefur verið lykilmaður á tveimur árum sínum hjá félaginu.

FRÉTTIR18.09.2023, 19:22

Sirigu kominn til Nice (Staðfest)

Franska félagið OGC Nice er búið að tilkynna félagsskipti Salvatore Sirigu til félagsins á frjálsri sölu.

FRÉTTIR16.09.2023, 17:43

Sif Atladóttir leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Sif Atladóttir hefur spilað sinn síðasta fótboltaleik og hefur sett skóna á hilluna. Þessi frábæra fótboltakona á magnaðan feril. Hún er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur.

„Bara týpískt, það er ekki hægt að spila fótbolta í svona veðri. Þær þurftu á þessu að halda til að halda sér uppi í deildinni og ég óska þeim til hamingju. Svona er tímabilið búið að vera." Sagði Sif þegar hún var spurð út í leik dagsins.

„Bara vel, það er búin að vera fín stemmning á æfingum, það er orka í liðinu og við höfum ekkert gefist upp." sagði hún þegar spurt var um hvernig hafi gengið síðustu vikur eftir að ljóst var að liðið myndi falla.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.