Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24444 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.09.2023, 16:16

Torino fær Duvan Zapata (Staðfest)

Torino hefur krækt í framherjann Duvan Zapata á láni frá Atalanta. Í lánssamningnum er kaupmöguleiki og kaupskylda. Kaupskyldan virkjast ef ákvæði í samningnum verða að veruleika. Zapata er Kólumbískur og er 32 ára gamall. Hann kom til Ítalíu fyrir tíu árum og gekk í raðir Napoli.

FRÉTTIR01.09.2023, 16:14

Forest sendir Freuler til Ítalíu og fær Dominguez í staðinn (Staðfest)

Nottingham Forest á Englandi og Bologna á Ítalíu hafa skipt á leikmönnum. Nicolas Dominguez er genginn í raðir Forest og Remo Freuler fer í hina áttina. Freuler kom til Forest frá Atalanta síðasta sumar og tók þátt í 33 leikjum í öllum keppnum. Honum er þakkað fyrir vel unnin störf. Dominguez var fyrirliði Bologna og skrifar hann undir fimm ára samning við Forest. Hann er argentínskur landsliðsmaður, á ellefu leiki fyrir landsliðið.

FRÉTTIR01.09.2023, 15:41

Sunderland fær hinn eftirsótta Burstow frá Chelsea (Staðfest)

Sunderland hefur greint frá því að félagið hefur fengið Mason Burstow á láni frá Chelsea út tímabilið. Burstow er tvítugur framhrji sem hefur komið við sögu í tveimur leikjum með Chelsea í upphafi tímabilsins. Hann var keyptur til Chelsea frá Chalrton í lok vetrargluggans 2022.

FRÉTTIR01.09.2023, 15:25

Tottenham lánar Tanganga til Augsburg (Staðfest)

Tottenham hefur staðfest að félagið sé búið að lána Japhet Tanganga til þýska félagsins Augsburg. Lánssamningnum fylgir kaupskylda, Augsburg þarf að kaupa leikmanninn næsta sumar. Það er ákvæði sem fylgir kaupskyldunni og ætla má að það séu annað hvort spilaðir leikir eða þá að Augsburg haldi sæti sínu í Bundesliga - mögulega bæði.

FRÉTTIR01.09.2023, 15:11

Sergio Reguilon til Man Utd (Staðfest)

Sergio Reguilon hefur skrifað undir samning við Manchester United en hann kemur á láni frá Tottenham. <i>Sky Sports News</i> segir að samkomulagið sé með þeim hætti að Reguilon gæti snúið aftur til Tottenham í janúar.

FRÉTTIR01.09.2023, 15:06

Andy Carroll til Amiens (Staðfest) - Verður númer 99

Andy Carroll er genginn í raðir franska félagsins Amiens á frjálsri sölu. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum sínum. Carroll er 34 ára framherji sem var síðast á mála hjá Reading. Hann hefur einnig leikið með WBA, Newcastle, West Ham, Liverpool og Preston á sínum ferli. Amiens er í næst efstu deild í Frakklandi og er liðið í 2. sæti eftir fjórar umferðir í deildinni. Carroll verður í treyju númer 99 hjá Amiens.

FRÉTTIR01.09.2023, 14:54

McAtee aftur til Sheff Utd (Staðfest)

James McAtee er mættur aftur til Sheffield United á láni frá Manchester City. McAtee, sem er örvfættur miðjumaður, átti gott tímabil með liðinu á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði níu mörk í 43 leikjum í öllum keppnum. McAtee er tíundi leikmaðurinn sem Sheffield United fær í glugganum.

FRÉTTIR01.09.2023, 14:36

Lecce kaupir Breka Baxter (Staðfest)

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Lecce að kaupa Þorlák Breka Baxter frá Selfossi. Hann er mættur til Ítalíu ásamt umboðsmanni sínum Ólafi Garðarssyni og er búið að ganga frá skiptunum. Breki er framherji sem kom á Selfoss frá Hetti/Huginn fyrir tímabilið 2021.

FRÉTTIR01.09.2023, 13:41

Bergþóra Sól til Örebro (Staðfest)

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er gengin í raðir sænska félagsins Örebro frá Breiðabliki. Bergþóra er miðjumaður sem skoraði eitt mark í 17 deildarleikjum með Blikum í sumar. Hún er fædd árið 2003 og lék þrettán unglingalandsleiki áður en hún svo lék með U23 landsliðinu fyrr á þessu ári.

FRÉTTIR01.09.2023, 12:24

Ansu Fati til Brighton (Staðfest)

Brighton tilkynnti rétt í þessu að Ansu Fati væri genginn í raðir félagsins. Hann kemur á láni út tímabilið frá Barcelona. Fati er tvítugur spænskur landsliðsmaður sem lék 36 leiki með Barcelona á síðasta tímabili. Fati var á sínum tíma álitinn einn allra efnilegasti leikmaður heims en erfið meiðsli hafa sett strik í reikninginn.

FRÉTTIR01.09.2023, 10:51

Lenglet til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur gengið frá eins árs lánssamningi við Clement Lenglet frá Barcelona. Lenglet er örvfættur miðvörður sem félagið hefur verið í leit að eftir að Tyrone Mings meiddist illa í byrjun tímabilsins. Lenglet er franskur landsliðsmaður sem var á láni hjá Tottenham á síðasta tímabili og var á lista Tottenham fyrir komandi tímabil. Hann endar hjá Villa sem verður í Sambandsdeildinni í vetur.

FRÉTTIR01.09.2023, 09:39

Matheus Nunes til Man City (Staðfest)

Manchester City hefur tilkynnt um kaup á Matheus Nunes frá Wolverhampton Wanderers. Portúgalski landsliðsmaðurinn hefur gert fimm ára samning við City.

FRÉTTIR01.09.2023, 09:35

Bonucci til Union Berlin (Staðfest)

Hinn 36 ára gamli Leonardo Bonucci hefur yfirgefið Juventus eftir að hafa spilað 502 leiki fyrir félagið. Hann er kominn til Union Berlin í Þýskalandi. <i>„Það er sérstök stund fyrir mig að taka skrefið út fyrir Ítalíu í fyrsta sinn á ferlinum,"</i> segir Bonucci.

FRÉTTIR01.09.2023, 09:17

Nuno Tavares frá Arsenal til Forest (Staðfest)

Vinstri bakvörðurinn Nuno Tavares er kominn til Nottingham Forest á láni frá Arsenal út tímabilið. Varnarmaðurinn stóðst læknisskoðun í gærkvöldi. Forest borgar 2 milljónir punda í lánskostnað og er með ákvæði um að geta keypt hann alfarið fyrir 12 milljónir punda. Tavares er 23 ára og kom til Forest frá Benfica 2021. Forest reyndi að krækja í Tavares fyrr í sumar en náði þá ekki samkomulagi við leikmanninn um kaup og kjör. Það er Gluggadagur en félagaskiptaglugganum verður lokað í enska boltanum klukkan 22 í kvöld.

FRÉTTIR01.09.2023, 09:08

Tommy Doyle til Wolves (Staðfest)

Miðjumaðurinn Tommy Doyle hefur verið lánaður til Wolves frá Manchester City en samningurinn gildir út tímabilið. Samkomulag Wolves og City inniheldur ákvæði um möguleg kaup á 4,3 milljónir punda á næsta ári. Doyle er 21 árs og hefur ekki náð að brjóta sér leið inn í sterkt lið City. Á síðasta tímabili lék hann á láni hjá Sheffield United og hjálpaði liðinu að komast upp. Þá hefur hann einnig verið lánaður til Cardiff og Hamburger SV. Það er Gluggadagur en félagaskiptaglugganum verður lokað í enska boltanum klukkan 22 í kvöld.

FRÉTTIR01.09.2023, 08:33

Cole Palmer til Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur aukið breidd sína sóknarlega með því að ganga frá kaupum á Cole Palmer frá Manchester City á 40 milljónir punda. Vængmaðurinn er þrettándi leikmaðurinn sem mætir á Stamford Bridge í sumar. Hann hefur skrifað undir sjö ára samning með möguleika á aukaári.

FRÉTTIR01.09.2023, 08:20

Glen Kamara til Leeds (Staðfest)

<p>Það er mikið umbreytingasumar í gangi hjá Leeds United eftir að félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni fyrir nokkrum mánuðum síðan. Félagið hefur misst lykilmenn og fengið nýja leikmenn inn, en Glen Kamara er sá áttundi sem félagið fær til sín í sumar.</p>

FRÉTTIR01.09.2023, 08:14

Taylor Harwood Bellis til Southampton (Staðfest)

Miðvörðurinn Taylor Harwood Bellis er kominn á lánssamningi frá Manchester City til Southampton í Championship-deildinni. Harwood-Bellis er 21 árs og var á láni hjá Burnley á síðasta tímabili. Hann vakti athygli fyrir framgöngu sína með enska U21 landsliðinu sem varð Evrópumeistari í sumar en hann var fyrirliði liðsins.

FRÉTTIR01.09.2023, 08:11

Altay Bayindir til Man Utd (Staðfest)

Tyrkneski markvörðurinn Altay Bayindir er kominn til Manchester United frá Fenerbahce. Hann skrifaði undir samning til júní 2027 en hægt er að framlengja samninginn um ár í viðbót. Kaupverðið er 4,3 milljónir punda.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.