Fotbolti.net
01.09.23 - 15:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Marko Pjaca yfirgefur Juventus eftir sjö ára veru (Staðfest)

Marko Pjaca yfirgefur Juventus eftir sjö ára veru (Staðfest)
Canon

Mynd: Rijeka

Marko Pjaca hefur yfirgefið herbúðir Juventus eftir sjö ár hjá ítalska risanum. Hann er genginn í raðir Rijeka í heimalandinu Króatíu.
Juventus greiddi um 30 milljónir evra fyrir vængmanninn árið 2016 þegar hann var álitinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu.

Hann meiddist illa árið 2017 og svo aftur 2019 sem aftraði hans framþróun. Alls kom hann einungis við sögu í 21 leik með Juventus og skoraði eitt mark.

Pjaca, sem er 28 ára, var á tíma sínum hjá Juve lánaður til Genoa, Tórínó, Fiorentina, Empoli, Schalke og Anderlecht.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.