Sergio Reguilon til Man Utd (Staðfest)

Erik ten Hag og Sergio Reguilon.

Mynd: Getty Images

Erik ten Hag og Sergio Reguilon.

Mynd: Getty Images
Sergio Reguilon hefur skrifað undir samning við Manchester United en hann kemur á láni frá Tottenham.
Sky Sports News segir að samkomulagið sé með þeim hætti að Reguilon gæti snúið aftur til Tottenham í janúar.

Reguilon er fenginn í ljósi meiðsla vinstri bakvarðanna Luke Shaw and Tyrell Malacia.
United var í viðræðum við Chelsea um Marc Cucurella en talið var að það yrði hagkvæmast að fá Reguilon og reyna þá einnig að fá Sofyan Amrabat frá Fiorentina.
„Í lífinu þarftu að vera tilbúinn undir allt og ég gat ekki hafnað því að spila fyrir þetta frábæra félag. Ég er búinn að ræða við stjórann og veit hvers er krafist af mér. Ég er tilbúinn að sýna fólki hvers ég er megnugur," segir Reguilon.

??????????????
— Manchester United (@ManUtd) September 1, 2023
Sergio Reguilon has signed up for the 2023/24 season! ????#MUFC