Lecce kaupir Breka Baxter (Staðfest)


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Lecce að kaupa Þorlák Breka Baxter frá Selfossi. Hann er mættur til Ítalíu ásamt umboðsmanni sínum Ólafi Garðarssyni og er búið að ganga frá skiptunum.
Breki er framherji sem kom á Selfoss frá Hetti/Huginn fyrir tímabilið 2021.
Breki er framherji sem kom á Selfoss frá Hetti/Huginn fyrir tímabilið 2021.
Hann var á dögunum kallaður inn í U19 landsliðið fyrir æfingaleiki í Slóveníu. Hann hefur til þessa leikið fjóra unglingalandsleiki.
Hann er átján ára og hefur skorað þrjú mörk í sextán leikjum með Selfossi í Lengjudeildinni í sumar.
Breki var samningsbundinn Selfossi út tímabilið. Hann skrifar undir tveggja ára samning við Lecce.
Hann er átján ára og hefur skorað þrjú mörk í sextán leikjum með Selfossi í Lengjudeildinni í sumar.
Breki var samningsbundinn Selfossi út tímabilið. Hann skrifar undir tveggja ára samning við Lecce.





