Fotbolti.net
01.09.23 - 14:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

McAtee aftur til Sheff Utd (Staðfest)

McAtee aftur til Sheff Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Sheffield United

James McAtee er mættur aftur til Sheffield United á láni frá Manchester City.

McAtee, sem er örvfættur miðjumaður, átti gott tímabil með liðinu á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði níu mörk í 43 leikjum í öllum keppnum.

McAtee er tíundi leikmaðurinn sem Sheffield United fær í glugganum.
Hann er 21 árs og á að baki sjö keppnisleiki með City. Hann er U21 landsliðsmaður sem á þrjú ár eftir af samningi sínum við City.

Anis Slimane, Yasser Larouci, Benie Traore, Auston Trusty, Vinicius Souza, Gustavo Hamer, Tom Davies, Cameron Archer og Luke Thomas eru hinir níu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.