Fotbolti.net
01.09.23 - 08:11
Elvar Geir Magnússon

Altay Bayindir til Man Utd (Staðfest)

Erik ten Hag og Altay Bayindir.

Erik ten Hag og Altay Bayindir.

Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneski markvörðurinn Altay Bayindir er kominn til Manchester United frá Fenerbahce. Hann skrifaði undir samning til júní 2027 en hægt er að framlengja samninginn um ár í viðbót.

Kaupverðið er 4,3 milljónir punda.
Þessi 25 ára markvörður hefur spilað 166 leiki á ferlinum og 53 sinnum haldið hreinu. Hann var lykilmaður þegar Fenerbahce varð tyrkneskur bikarmeistari á síðasta tímabili og hafnaði í öðru sæti deildarinnar.

Hann á að veita Andre Onana samkeppni um markvarðarstöðuna á Old Trafford.

„Það er mikill heiður að vera kominn til Manchester United og verða fyrsti tyrkneski leikmaðurinn hjá félaginu. Ég get get ekki beðið eftir því að byrja að vinna með markvarðateyminu og við munum styðja hvorn annan á hverjum degi," segir Bayindir.

Það er Gluggadagur en félagaskiptaglugganum verður lokað í enska boltanum klukkan 22 í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.