Fotbolti.net
01.09.23 - 08:33
Elvar Geir Magnússon

Cole Palmer til Chelsea (Staðfest)

Palmer fær treyju númer 20 hjá Chelsea.

Palmer fær treyju númer 20 hjá Chelsea.

Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea hefur aukið breidd sína sóknarlega með því að ganga frá kaupum á Cole Palmer frá Manchester City á 40 milljónir punda. Vængmaðurinn er þrettándi leikmaðurinn sem mætir á Stamford Bridge í sumar.

Hann hefur skrifað undir sjö ára samning með möguleika á aukaári.
Maurico Pochettino hefur viljað fá inn sóknarleikmann síðan Christopher Nkunku meiddist illa á hné. Þá verður Chelsea án Mykhailo Mudryk og Carney Chukwuemeka í leik gegn Nottingham Forest á laugardag.

Cole Palmer er 21 árs örvfættur og fjölhæfur sóknarleikmaður.

Palmer hafði vonast eftir því að fá fleiri tækifæri hjá City eftir að Riyad Mahrez fór til Sádi-Arabíu. Hann skoraði gegn Arsenal í Samfélagsskildinum og gegn Sevilla í Ofurbikarnum. Þá lék hann lykilhlutverk með enska U21 landsliðinu sem vann EM í sumar.

En samkeppnin um fremstu stöður hjá Manchester City er rosaleg og Pep Guardiola hefur bætt Jeremy Doku og Matheus Nunes við hóp sinn í þessum glugga.

Þá styrkir sala Palmer stöðu City gagnvart fjárhagsreglum UEFA þar sem hann er uppalinn leikmaður.

Það er Gluggadagur en félagaskiptaglugganum verður lokað í enska boltanum klukkan 22 í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.