Bergþóra Sól til Örebro (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir er gengin í raðir sænska félagsins Örebro frá Breiðabliki.
Bergþóra er miðjumaður sem skoraði eitt mark í 17 deildarleikjum með Blikum í sumar. Hún er fædd árið 2003 og lék þrettán unglingalandsleiki áður en hún svo lék með U23 landsliðinu fyrr á þessu ári.
Bergþóra er miðjumaður sem skoraði eitt mark í 17 deildarleikjum með Blikum í sumar. Hún er fædd árið 2003 og lék þrettán unglingalandsleiki áður en hún svo lék með U23 landsliðinu fyrr á þessu ári.
Örebro hefur verið með Íslendinga innaborðs síðustu tímabil. Berglínd Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir voru hjá félaginu og Sólveig Jóhannesdóttir Larsen samdi við liðið síðasta vetur en náði ekki að spila keppnisleik með liðinu vegna meiðsla og sneri hún svo heim til Íslands í sumar og samdi við Breiðablik.
Samningur Bergþóru við Breiðablik var út næsta tímabil.
Hún kemur inn í lið Örebro sem situr í 12. sæti deildarinnar í Svíþjóð sem er fallumspilssæti. Níu umferðir eru eftir og er næsti leikur liðsins gegn Norrköping á morgun.

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir til Örebro (Staðfest) Juju það gengur vel í Smáranum pic.twitter.com/30qHPPABkF
— Arnar Laufdal (@AddiLauf) August 31, 2023