Fotbolti.net
01.09.23 - 09:35
Elvar Geir Magnússon

Bonucci til Union Berlin (Staðfest)

Leonardo Bonucci.

Leonardo Bonucci.

Canon

Mynd: Union Berlin

Hinn 36 ára gamli Leonardo Bonucci hefur yfirgefið Juventus eftir að hafa spilað 502 leiki fyrir félagið. Hann er kominn til Union Berlin í Þýskalandi.

„Það er sérstök stund fyrir mig að taka skrefið út fyrir Ítalíu í fyrsta sinn á ferlinum," segir Bonucci.
„Hjá Union hef ég tækifæri til að halda áfram að spila í hæsta styrkleikaflokki og notað reynslu mína til að aðstoða liðið í þremur erfiðum keppnum. Ég hlakka mikið til."

Union Berlín er í Meistaradeildinni þar sem liðið verður í riðli með Napoli, Real Madrid og Braga.

Bonucci hefur níu sinnum orðið Ítalíumeistari á farsælum ferli sínum. Hann varð Evrópumeistari með ítalska landsliðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.