Fotbolti.net
01.09.23 - 09:08
Elvar Geir Magnússon

Tommy Doyle til Wolves (Staðfest)

Tommy Doyle til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Wolves

Miðjumaðurinn Tommy Doyle hefur verið lánaður til Wolves frá Manchester City en samningurinn gildir út tímabilið.

Samkomulag Wolves og City inniheldur ákvæði um möguleg kaup á 4,3 milljónir punda á næsta ári.

Doyle er 21 árs og hefur ekki náð að brjóta sér leið inn í sterkt lið City.

Á síðasta tímabili lék hann á láni hjá Sheffield United og hjálpaði liðinu að komast upp. Þá hefur hann einnig verið lánaður til Cardiff og Hamburger SV.

Það er Gluggadagur en félagaskiptaglugganum verður lokað í enska boltanum klukkan 22 í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.