Fotbolti.net
01.09.23 - 16:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Torino fær Duvan Zapata (Staðfest)

Torino fær Duvan Zapata (Staðfest)
Canon

Mynd: Torino

Torino hefur krækt í framherjann Duvan Zapata á láni frá Atalanta. Í lánssamningnum er kaupmöguleiki og kaupskylda. Kaupskyldan virkjast ef ákvæði í samningnum verða að veruleika.

Zapata er Kólumbískur og er 32 ára gamall. Hann kom til Ítalíu fyrir tíu árum og gekk í raðir Napoli.

Hann hefur einnig leikið með Udinese, Sampdoria og Atalanta. Síðustu fimm tímabil hefur hann verið hjá Atalanta.

Í 341 leikjum fyrir ítölsk félög hefur Zapata skorað 117 mörk. Hann hefur þá skorað fjögur mörk í 34 landsleikjum.

Hjá Torino verður hann í treyju númer 91.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.